Skilmálar

  1. Almennt

Aðgangur og notkun netverslunarinnar craftverlsun.is (netverslun) er háð eftirfarandi skilmálum.  Ef þú ferð á vefsíðuna, skoðar eða leggur fram pöntun  samþykkir þú þessa skilmála.

Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega þar sem þeir innihalda mikilvægar upplýsingar.  Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur á netfangið fyrirspurn@newwave.is

Þessi vefsíða er í eigu og rekin af New Wave Iceland ehf., kt. 580219-1790, Höfðabakki 9, 110 Reykjavík. VSK númer er 135086.

New Wave Iceland áskilur sér rétt til að breyta, fjarlægja  eða bæta við vefsíðuna og skilmála þessa án sérstakra tilkynninga. Skilmálarnir sem eru í gildi  þegar pöntun er gerð,  gilda um viðkomandi pöntun, með öllum þeim breytingum og viðaukum sem kunna að hafa verið gerðir á þeim. Skilmálarnir skulu vera í samræmi við landslög Íslands, tilskipanir og reglur Evrópska Efnahagssvæðisins eftir því sem við á.

Þessi vefsíða kann einnig að tengjast öðrum vefsíðum sem eru ekki reknar af New Wave Iceland. New Wave Iceland hefur ekki stjórn á þeim síðum og tekur ekki ábyrgð á þeim né þeim skaða eða tjóni sem gæti orðið við notkun þeirra.

  1. Persónuvernd

New Wave Iceland leggur áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina sinna.

New Wave Iceland leggur áherslu á að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga (Persónuverndarlögin).

New Wave Iceland leggur áherslu á að vinnsla á persónugreinanlegum upplýsingum sé takmörkuð að því marki að hægt sé að veita þá þjónustu sem viðskiptavinir biðja um.

New Wave Iceland leggur áherslu á ábyrga vinnslu upplýsinga um viðskiptavini og að sú vinnsla sé gerð á ábyrgan, öruggan og löglegan hátt.

New Wave Iceland leggur áherslu á að allar upplýsingar um viðskiptavini sem látnar eru í té eða sóttar með þeirra leyfi til þriðja aðila séu eingöngu sóttar í þeim tilgangi að hægt sé að veita viðskiptavinum þá þjónustu sem þeir biðja um.

New Wave Iceland leggur áherslu á að viðskiptavinir New Wave Iceland séu eigendur að sínum eigin persónuupplýsingum, hafi einir aðgang að slíkum upplýsingum, ásamt starfsfólki New Wave Iceland og nauðsynlegum þriðju aðilum.

  1. Kaupskilmálar

New Wave Iceland samþykkir aðeins pantanir sem gerðar eru af vefsíðu fyrirtækisins.   Ekki er hægt að taka á móti pöntunum í síma, tölvupóst eða með bréfapósti.  Þjónusta á Facebook síðu New Wave Iceland er háð þeim skilyrðum sem fram koma hér á eftir.

Til að leggja fram pöntun á vefsvæðinu verður þú að vera 16 ára, búsett/ur  á Íslandi og/eða með íslenskt heimilisfang. Þú gefur upp afhendingar- og tengiliðsupplýsingar (eins og tölvupóstfang og farsímanúmer) í greiðsluferlinu.

Vörur  sem eru settar í innkaupakörfuna  eru ekki fráteknar fyrr en pöntunin er  staðfest af New Wave Iceland með pöntunarstaðfestingu sem er send á netfangið þitt.

Samningur og staðfesting á pöntun

Þegar pöntun er afgreidd á vefsíðunni er kominn á bindandi samningur um kaup eftir að New Wave Iceland hefur staðfest pöntunina á tölvupóstfangið sem þú gafst upp. (Pöntunarstaðfesting). Pöntunarstaðfestingin er send á netfangið þitt þegar New Wave Iceland hefur skráð pöntunina og fengið greiðslu. Pantanir skráðar á föstudögum, laugardögum, sunnudögum og öðrum helgidögum  verða staðfestar eigi síðar en næsta virka dag kl. 18:00.

  1. Verðlagning og gjaldmiðill

Verð eru sýnd í íslenskum krónum (ISK) á vefsíðunni og er með vsk . Verð getur breyst og tilboð má afturkalla hvenær sem er.

Uppgefið verð við pöntun gildir um allt kaupferlið

  1. Afsláttar- og kynningarkóðar

New Wave Iceland getur tímabundið boðið kynningarverð og afslátt, með eða án kynningarkóða.

Afslættir með kóða eru almennt eingöngu gildir einu sinni  og þegar kóðinn er notaður verður hann óvirkur og því ekki lengur gildur.

Ekki er hægt að bæta við afslætti í pöntun eftir að hún er staðfest. Þess vegna þarf  að tryggja að allar upplýsingar um slíkt séu skráðar áður en pöntun  er staðfest og greidd. New Wave Iceland tekur ekki ábyrgð á kynningum sem birtar eru á vefsíðum þriðja aðila.

New Wave Iceland áskilur sér rétt til að afturkalla afslátt, kynningarverð eða kynningarkóða hvenær sem er.

Kynningarafslættir, aðrir afslættir eða kynningarkóðar í prentuðu eða stafrænu formi gilda ekki með öðrum tilboðum nema annað sé skýrt tekið fram. New Wave Iceland áskilur sér því rétt til að ógilda pöntun viðskiptavinarins ef misnotkun af herferðum eða kynningum verður vart.

  1. Greiðsla

New Wave Iceland samþykkir eftirfarandi greiðslumáta fyrir pantanir:

Kredit- / debetkort

Þegar greiðsla er framkvæmd með kredit- eða debetkorti (VISA, Mastercard,  Maestro eða American Express) er greiðslan skuldfærð þegar í stað og heimild fæst.

Allar greiðslur sem eru gerðar með kredit- eða debetkorti eru gerðar með öruggum greiðsluþjónustuveitanda (PSP) sem notar SSL (Secure Sockets Layer) í dulkóðuðu formi sem veitir viðskiptavinum öryggi í samræmi við alþjóðlega öryggisstaðal PCI DSS .

Allir kredit- og debetkortakorthafar gangast undir skilmála kortaútgefanda. Ef útgefandi tiltekins kredit- eða debetkorts neitar að heimila greiðslu til New Wave Iceland, berast þér skilaboð þar sem fram kemur að greiðsluna sé ekki hægt að framkvæma. Snyrtivara.is ber ekki ábyrgð á töfum eða synjun á því að vara sé afhent sé það rakið til synjunar á korti eða heimild.

Suma staðbundna kredit- / debetkortaútgefendur, t.d. DanCard (Danmörk) Carte Bleue (Frakkland), er einnig hægt að nota til að greiða pöntunina en Borgun hf. er færsluhirðir New Wave Iceland og vísast til reglna þeirra um færsluhirðingu að öðru leyti.

Greiðsla með Netgíró.

Millifærsla

New Wave Iceland býður upp á að lagt sé inn á reikning okkar. 

New Wave Iceland

Reikningsnúmer: 0528-26-4965
Kennitala: 580219-1790

Þegar greiðsla hefur verið innt af hendi og staðfesting send á netfangið fyrirspurn@newwaveis verður staðfestingarpóstur sendur til þín og þar með eru viðskiptin staðfest.

  1. Afhending

New Wave Iceland afgreiðir pantanir eins fljótt og auðið er. 

Þegar pöntun er send frá vörugeymslu okkar færð þú senda staðfestingu með upplýsingum um hvernig á að fylgjast með sendingunni. Athugaðu að rekjanleiki er aðeins mögulegur á pöntunum sem sendar eru með Póstinum.

Ef afhendingu seinkar verulega eða í meira en 20 daga hefur þú heimild til að hætta við kaupin. Í slíku tilviki biðjum við þig að hafa samband við New Wave Iceland

  1. Skilaréttur

Skilafrestur er 30 dagar frá þeim degi sem pöntunin barst til þín.
Varan þarf að vera í uppunalegu ástandi ásamt öllum umbúðum og merkingum.

Ekki er hægt að skipta vörum sem hafa verið nafnamerktar.

Útsöluvörum fæst hvorki skipt né skilað. 

Hins vegar að því er varðar vörur sem eru gallaðar vísast í texta hér að neðan.

 

Hvernig á að skila/skipta vöru:

Vinsamlegast komdu með eða sendu vörurnar sem þú vilt skila til New Wave Iceland innan 30 daga frá þeim degi sem þú fékkst vörurnar á eftirfarandi heimilisfang:

Höfðabakki 9, 110 Reykjavík

Við mælum með að vörurnar séu sendar með Póstinum og þú geymir sönnunargögn um afhendingu og sendingarnúmer þar til kaupverð hefur verið endurgreitt eða ný vara hefur verið send til þín.

Samkvæmt lögum ber þér að gæta þess að varan sé í lagi á meðan hún er í þinni vörslu og berð ábyrgð á skemmdum meðan á flutningi stendur.

  1. Endurgreiðslur

Ef vörur, sem hætt hefur verið við, eru sendar til baka með pósti greiðir viðskiptavinur sendingu.

New Wave Iceland mun endurgreiða þér eins fljótt og auðið er.

Við munum endurgreiða með sama greiðslumáta  og þú notaðir við upphafleg viðskipti, nema þú hafir samið sérstaklega um það með öðrum hætti. Enginn aukakostnaður leggst á endurgreiðsluna vegna skila eða ef hætt er við af hálfu New Wave Iceland.

  1. Tilkynning um galla

Við skoðum vandlega hverja sendingu fyrir afhendingu til þín. Ef vörurnar eru samt sem áður rangar, skemmdar eða gallaðar við komu til þín, skal New Wave Iceland ráða bót á gallanum án endurgjalds með því að skipta um slíkar vörur með nýjum vörum, án aukakostnaðar.

Ef um er að ræða rangar, skemmdar eða gallaðar vörur, ertu vinsamlegast beðin(n) um að hafa samband við okkur á fyrirspurn@newwave.is

  1. Ábyrgð

New Wave Iceland áskilur sér rétt til að falla frá afhendingu pöntunarinnar ef skýr og augljós verðvilla birtist á vefsíðunni (t.d. verð vörunnar virðist vera of hátt eða of lágt eða ef verð er gefið upp sem 0 kr.).  Í slíku tilviki skal New Wave Iceland tilkynna þér strax um villuna og leiðrétta verð.

Vörurnar sem seldar eru á New Wave Iceland eru eingöngu ætlaðir til einkanota. Þú samþykkir að nota ekki vörurnar í viðskiptalegum tilgangi eða til endursölu og tökum ekki ábyrgð á tapi, hagnaði, truflun fyrirtækja eða missi viðskiptatækifæra. Óheimilt er að afrita, hlaða niður, geyma, senda eða annað af svipuðum toga sem tengist texta og myndum sem birtar eru á síðu New Wave Iceland í neinum tilgangi án skriflegs leyfis. New Wave Iceland er ekki ábyrgt fyrir neinum skekkjum í texta eða myndum. New Wave Iceland ber enga ábyrgð á neinum töfum sem verða  á afhendingu pantana vegna utanaðkomandi atburða, þ.mt en ekki takmarkað við stríð, flóð, eldsvoða, vinnudeilur, verkföll, uppþot, óeirðir, opinberar aðgerðir eða aðra svipaða atburði.

New Wave Iceland leitast við að lýsa nákvæmlega vörum og myndum á síðunni en það gætu verið minniháttar litabreytingar á milli mynda og raunverulegra vara vegna fjölda þátta eins og vafra sem er notaður eða litaskjástillinga. New Wave Iceland er ekki ábyrgt fyrir mismunandi litum vegna fyrrnefndra þátta.

New Wave Iceland á rétt á að trufla/stöðva notkun craftverlsun.is hvenær sem er, t.d. vegna viðhaldsaðgerða.

  1. Breytingar á skilmálum.

Ef við ákveðum að breyta eða uppfæra skilmála okkar verður dagsetningu hér að neðan breytt.

Lög og varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun Snyrtivara.is á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.